Gabríel Hrannar Eyjólfsson mun ganga til liðs við KR að loknu tímabili í Bestu deild karla í fótbolta. Grótta staðfestir vistaskiptin í dag.
Gabríel er lykilmaður í liði Gróttu sem féll úr 1. deild karla í ár en hann hefur leikið fyrir félagið frá árinu 2017.
KR hefur náð í Gyrði Hrafn Guðbrandsson, Guðmund Andra Tryggvason og Ástbjörn Þórðarson nú þegar en Gabríel er uppalinn í KR eins og hinir þrír og ljóst er að KR ætlar að byggja á Vesturbæingum á næstu árum.