Lykilmaður KR í bann

Aron Sigurðarson er kominn í leikbann.
Aron Sigurðarson er kominn í leikbann. mbl.is/Ólafur Árdal

KR verður án sóknarmannsins Arons Sigurðarsonar er liðið mætir Vestra á heimavelli í fyrstu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í fótbolta á sunnudag.

Aron fékk sitt fjórða gula spjald á leiktíðinni í leiknum gegn Val í gær. Vestri leikur einnig án lykilmanns því markvörðurinn Karl Eskelinen er einnig búinn að fá fjórar áminningar.

Halldór Jón Sigurður Þórðarson hjá Fylki leikur ekki gegn Fram á sunnudaga af sömu ástæðu og sömu sögu er að segja um Jakob Snæ Árnason hjá KA, en hann missir af leik liðsins við HK.

Þá er Logi Hrafn Róbertsson hjá FH kominn í sitt þriðja bann á leiktíðinni, því hann fékk sitt tíunda gula spjald á tímabilinu er liðið lék við Fram á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert