Breiðablik og FH eigast við í 22. og næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta á Kópavogsvelli klukkan 14.
Breiðablik verður Íslandsmeistari með sigri ef Valur tapar fyrir Víkingi á sama tíma en Breiðablik er með 57 stig og Valur 56 þegar tvær umferðir eru eftir.
Eins er Brelðablik nánast öruggt með titilinn vegna markatölu ef liðið sigrar og Valur gerir jafntefli.
Mbl.is er á Kópavogsvelli og færir ykkur það helsta í beinni textlaýsingu.