KR er komið upp í 1. deild kvenna í fótbolta eftir sigur á Einherja, 2:1, á heimavelli sínum í lokaumferð 2. deildarinnar í Vesturbænum í dag.
Á sama tíma tapaði Völsungur fyrir toppliði Hauka, 3:0, og leikur áfram í 2. deild að ári.
Karólína Dröfn Jónsdóttir kom Einherja yfir í Vesturbænum á 21. mínútu en Makaya Soll jafnaði á 42. mínútu og Anna María Bergþórsdóttir skoraði sigurmarkið á 61. mínútu.
Haukar vinna deildina með 53 stig og KR endar í öðru sæti með 45 stig. Völsungur situr eftir með sárt ennið í þriðja sæti með 42 stig.
Fréttin verður uppfærð þegar upplýsingar um markaskorara í leik Hauka og Völsungs berast.