Víkingur og Valur áttust við í fjórðu umferð úrslitakeppni Bestu deildar kvenna í dag. Fyrir leikinn voru Víkingar í 4. sæti með 33 stig og Valskonur í 2. sæti með 56 stig.
Valskonur unnu leikinn 2:1 og fáum við því hreinan úrslitaleik milli Vals og Breiðabliks í lokaumferðinni en leikurinn verður spilaður á Hlíðarenda næsta laugardag klukkan 16:30. Breiðablik er með 60 stig og Valur 59 þannig að Breiðabliki nægir jafntefli til að verða Íslandsmeistari.
Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur framan af en á 21. mínútu kom Fanndís Friðriksdóttir Valskonum yfir 1:0 með góðu marki boltinn hafði viðkomu í varnarmanni Víkings og skotið þá óverjandi fyrir Kötlu Sveinbjörnsdóttur í markinu.
Það gerðist ekkert í leiknum fyrr en á 40. mínútu þegar Valur fékk aukaspyrnu 25 metrum frá markinu og Anna Rakel Pétursdóttir tók spyrnuna og boltinn söng í vinklinum, 2:0 fyrir Val og leikurinn algjörlega í höndum Valskvenna.
Seinni hálfleikurinn byrjaði fjörlega þegar Shaina Ashouri skoraði eftir 47 mínútur og staðan orðin 2:1 fyrir Val.
Valskonur fengu dauðafæri til að klára leikinn á 68. mínútu en Berglind Björg Þorvaldsdóttir setti boltann rétt framhjá stönginni og var það síðasta færi leiksins.
Keflavík | 0:1 | Afturelding | |
---|---|---|---|
Afturelding spilar í Bestu deild karla á næsta tímabili eftir 1:0 sigur gegn Keflavík. | Leik lokið