Brynjólfur inn í landsliðshópinn

Brynjólfur Willumsson er í landsliðshópnum.
Brynjólfur Willumsson er í landsliðshópnum. Ljósmynd/KSÍ

Åge Hareide, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn fyrir tvo leiki á heimavelli gegn Wales og Tyrklandi í Þjóðadeild Evrópu síðar í mánuðinum.

Leikirnir fara báðir fram á Laugardalsvelli, sá fyrri gegn Wales föstudagskvöldið 11. október og sá síðari gegn Tyrklandi mánudagskvöldið 14. október.

Ein breyting er gerð á hópnum sem var valinn fyrir síðasta verkefni í síðasta mánuði þar sem Brynjólfur Willumsson, sóknarmaður Groningen, kemur inn í leikmannahópinn í stað Hákonar Arnars Haraldssonar, sem er meiddur, og Arnórs Sigurðssonar, sem er veikur.

Leikmannahópurinn:

Markverðir:

Elías Rafn Ólafsson -Midtjylland - 6 leikir
Patrik Sigurður Gunnarsson - Kortrijk - 4 leikir
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford - 13 leikir

Varnarmenn:

Kolbeinn Birgir Finnsson - Utrecht - 13 leikir
Logi Tómasson - Strömsgodset  - 4 leikir
Daníel Leó Grétarsson - Sönderjyske - 20 leikir
Hjörtur Hermannsson - Carrarese - 29 leikir, 1 mark
Guðlaugur Victor Pálsson - Plymouth - 45 leikir, 2 mörk
Sverrir Ingi Ingason - Panathinaikos - 51 leikur, 3 mörk
Valgeir Lunddal Friðriksson - Fortuna Düsseldorf - 11 leikir
Alfons Sampsted - Birmingham City - 22 leikir

Miðjumenn:

Willum Þór Willumsson - Birmingham City - 11 leikir
Mikael Neville Anderson - AGF - 30 leikir, 2 mörk
Stefán Teitur Þórðarson - Preston North End - 22 leikir, 1 mark
Arnór Ingvi Traustason - Norrköping - 59 leikir, 6 mörk
Jóhann Berg Guðmundsson - Al-Orobah - 95 leikir, 8 mörk
Ísak Bergmann Jóhannesson - Fortuna Düsseldorf - 28 leikir, 3 mörk
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha Berlín - 39 leikir, 6 mörk
Mikael Egill Ellertsson - Venezia - 15 leikir, 1 mark
Gylfi Þór Sigurðsson - Valur - 82 leikir, 27 mörk

Sóknarmenn:

Brynjólfur Andersen Willumsson - Groningen - 2 leikir, 1 mark
Andri Lucas Guðjohnsen - Gent - 26 leikir, 6 mörk
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad - 10 leikir, 3 mörk

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert