KR-ingurinn aftur í uppeldisfélagið

Óliver Dagur Thorlacious er kominn til KR á nýjan leik.
Óliver Dagur Thorlacious er kominn til KR á nýjan leik. Ljósmynd/KR

Knattspyrnumaðurinn Óliver Dagur Thorlacious hefur gert þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt KR og mun leika með liðinu frá og með næstu leiktíð.

Óliver kemur til KR frá Fjölni, þar sem hann hefur verið undanfarin tvö tímabil. Þar á undan var hann leikmaður Gróttu og fór með liðinu úr 2. deild og upp í úrvalsdeildina, undir stjórn núverandi stjóra KR Óskars Hrafns Þorvaldssonar.

Miðjumaðurinn lék tvo leiki með meistaraflokki KR árið 2017 en náði ekki að festa sig í sessi í aðalliðinu. Hann fær nú annað tækifæri frá og með næsta ári. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert