Júlíus inn í landsliðshópinn

Júlíus Magnússon fyrir landsliðsæfingu í síðasta mánuði.
Júlíus Magnússon fyrir landsliðsæfingu í síðasta mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Júlíus Magnússon, miðjumaður og fyrirliði Fredrikstad í norsku úrvalsdeildinni, hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Íslands fyrir heimaleiki gegn Wales og Tyrklandi í B-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu síðar í mánuðinum.

Júlíus kemur inn sem 24. maður leikmannahópsins líkt og í síðasta landsliðsverkefni þegar Ísland mætti Svartfjallalandi á heimavelli og Tyrklandi á útivelli.

Júlíus, sem er 26 ára gamall, á að baki fimm A-landsleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert