Sú leikjahæsta og fyrirliðinn hætta

Anna María Friðgeirsdóttir tekur við bikarnum á Laugardalsvelli.
Anna María Friðgeirsdóttir tekur við bikarnum á Laugardalsvelli. Árni Sæberg

Knattspyrnukonan Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Selfoss til margra ára, hefur lagt skóna á hilluna. Anna María er leikjahæsti leikmaður í sögu kvennaliðs Selfoss.

Hún lék allan ferilinn með Selfossi og varð bikarmeistari með liðinu árið 2019. Anna María lék einnig úrslitaleiki Selfyssinga árið 2014 og 2015. Hún lék yfir 300 leiki með Selfossi í öllum keppnum.

Ingvi Rafn Óskarsson hefur einnig lagt skóna á hilluna, en hann lék stærstan hluta ferilsins með Selfossi.

Hann var fyrirliði Selfyssinga á leiktíðinni sem var að líða. Selfoss vann 2. deild og bikarkeppni neðrideilda. Ingvi lék yfir 200 leiki fyrir Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert