Um eitt þúsund Walesverjar verða í stúkunni á Laugardalsvelli er Ísland og Wales eigast við í Þjóðadeild karla í fótbolta á föstudaginn kemur.
Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu KSÍ. Ísland mætir Wales á föstudagskvöldið og svo Tyrklandi í sömu keppni á mánudag eftir viku.
Alls er búið að selja rétt rúmlega 4.000 miða á leikinn við Wales og tæplega 2.000 miða á leikinn við Tyrkland.