Liðstyrkur í Hafnarfjörðinn

Daníel Smári Sigurðsson er kominn í Hauka.
Daníel Smári Sigurðsson er kominn í Hauka. Ljósmynd/Haukar/Hulda Margrét

Knattspyrnudeild Hauka hefur gengið frá samningi við Daníel Smára Sigurðsson. Hann kemur til Hauka frá Fjölni og skrifar undir tveggja ára samning í Hafnarfirðinum.

Daníel Smári, sem er 21 árs, lék sjö leiki með Ægi í 1. deildinni á síðasta ári. Þá hefur hann leikið yfir 50 leiki með Vængjum Júpíters í 3. og 4. deild.

Hann er uppalinn hjá Fjölni en spilaði aldrei deildarleik með uppeldisfélaginu.   

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert