Dæmdi löglegt mark af Íslandi síðast

Kristall Máni Ingason skoraði markið sem var ranglega dæmt af.
Kristall Máni Ingason skoraði markið sem var ranglega dæmt af. Eyþór Árnason

Bosníumaðurinn Antoni Bandic dæmir leik Íslands og Wales í Þjóðadeild karla í fótbolta á Laugardalsvelli en flautað verður til leiks klukkan 18.45 í kvöld.

Bandic þekkir það vel að dæma leiki Íslands og Wales því hann var með flautuna er U21 árs landslið þjóðanna leiddu saman hesta sína í undankeppni EM í Wales í nóvember í fyrra.

Wales vann þann leik 1:0, þrátt fyrir að Kristall Máni Ingason hafi komið boltanum í mark Wales. Bandic dæmdi markið af og spjaldaði Kristal fyrir að nota höndina, sem var kolrangur dómur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert