Rúmlega 5.000 miðar seldir

Ísland vann Svartfjallaland í síðasta heimaleik.
Ísland vann Svartfjallaland í síðasta heimaleik. Árni Sæberg

Ísland mætir Wales í Þjóðadeild karla í fótbolta á Laugardalsvelli klukkan 18.45. Enn er hægt að nálgast miða á Tix.is.

Búið er að selja um 5.200 miða á leikinn og þar af 1.000 til stuðningsmanna Wales, sem ætla að fjölmenna í Laugardalinn.

Tyrkland og Wales eru í tveimur efstu sætum riðilsins með fjögur stig, Ísland er með tvö og Svartfjallaland rekur lestina, án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert