Skrifar til tveggja ára í Ólafsvík

Brynjar Kristmundsson, til vinstri, ásamt Guðjóni Þórðarsyni.
Brynjar Kristmundsson, til vinstri, ásamt Guðjóni Þórðarsyni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Brynjar Kristmundsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Víking Ólafsvík. 

Hann hefur verið aðalþjálfari liðsins undanfarin tvö ár en Ólsarar höfnuðu í fjórða sæti 2. deildarinnar á nýliðinni leiktíð og voru aðeins einu stigi frá því að komast upp í 1. deild. 

Brynjar hóf þjálfaraferil sinn með Reyni Hellissandi árið 2022 en færði sig síðan yfir til Ólafsvíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert