Þá hef ég mikla trú

Jóhann Berg Guðmundsson.
Jóhann Berg Guðmundsson. mbl.is/Karítas

Jóhann Berg Guðmundsson landsliðsfyrirliði er kokhraustur fyrir heimaleik Íslands gegn Tyrklandi í Þjóðdeild Evrópu í knattspyrnu á Laugardalsvelli annað kvöld. 

Íslenska liðið gerði jafntefli gegn Wales, 2:2, síðastliðinn föstudag eftir að hafa lent 2:0-undir. Jóhann, sem sat fyrir svörum á blaðamannafundi ásamt Åge Hareide í höfuðstöðvum KSÍ í dag, sagði að íslenska liðið verði að spila eins og það gerði í seinni hálfleik á föstudaginn var. 

„Væri æskilegt að spila þannig. Við tökum það góða og slæma með okkur úr þeim leik. 

Ef við höldum áfram að gera það sem við gerðum vel gegn Wales þá hef ég mikla trú á okkur annað kvöld. 

Við vitum að Tyrkland er mjög gott lið. Við verðum að gera þeim erfitt fyrir,“ sagði Jóhann Berg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert