Orri kom Íslandi yfir með glæsibrag

Orri Steinn Óskarsson fagnar markinu.
Orri Steinn Óskarsson fagnar markinu. mbl.is/Eyþór

Orri Steinn Óskarsson kom Íslandi yfir á þriðju mínútu leiks gegn Tyrklandi í 4. riðli B-deild­ar Þjóðadeild­ar karla í knatt­spyrnu á Laug­ar­dals­velli í kvöld. 

Orri fékk boltann frá Mikael Anderson við miðjulínuna og var einn gegn Abdülkerim Bardakcı varnarmanni Tyrklands. 

Orri keyrði upp hálfan völlinn, hélt Bardakci frá sér og smellti boltanum í þaknetið yfir Ugurcan Cakır markmann. 

Orri keyrir upp völlinn.
Orri keyrir upp völlinn. mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert