Ætlar að enda ferilinn á eigin forsendum

Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson. mbl.is/Óttar Geirsson

Matthías Vilhjálmsson skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við Íslandsmeistara Víkings úr Reykjavík. 

Matthías, sem verður 38 ára gamall á næsta tímabili, hefur átt í vandræðum með meiðsli á þessu tímabili og hefur lítið sem ekkert spilað undanfarna mánuði. 

Hann átti mjög gott tímabil með Víkingum í fyrra og hefur verið að spila í fullt af stöðum þrátt fyrir að vera framherji að upplagi. 

Matthías skrifaði færslu á Facebook-síðu sinni eftir tilkynningu Víkinga og sagðist þar vilja enda ferilinn á eigin forsendum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert