Grasið á Laugardalsvelli verður fært nær stúkunni í áætluðum framkvæmdum.
Ríkisútvarpið greinir frá en þar kemur fram að samkvæmt verkáætlun eigi völlurinn að vera tilbúinn í júlí á næsta ári.
Til stendur að leggja hita undir grasið en ásamt því verður sett blendisgras á völlinn. Þá verður leikflöturinn færður nær gömlu stúkunni en þar komast að fleiri áhorfendur og fjölmiðlaaðstaða.
Hlaupabrautin verður fjarlægð þar sem frjálsíþróttir fá eigið svæði og ný austurstúka reist nær vellinum.