Víkingur úr Reykjavík ætlar að bjóða sínum stuðningsmönnum frían rútumiða upp á Akranes fyrir leik liðsins gegn ÍA í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn.
Íslandsmeistarar Víkings eru á toppnum með 56 stig, jafnmörg og Breiðablik en mun betri markatölu.
ÍA er hins vegar í mikilli Evrópubaráttu og má búast við æsispennandi leik á laugardaginn.
Þar sem allt er undir vilja Víkingar fá stuðningsmenn sína upp á Skagann og bjóða því upp á fríar rútuferðir. Rúturnar leggja af stað frá Víkinni klukkan 12 og munu síðan skutla stuðningsfólki aftur í Víkina að leik loknum.
Hægt er að nálgast rútumiðana hér.