Í dag getur heldur betur dregið til tíðinda í Bestu deild karla í fótbolta þegar fjórir af sex leikjum 26. og næstsíðustu umferðar deildarinnar fer fram.
En á hinn bóginn er alls ekki víst að úrslitin ráðist og bíða verði eftir lokaumferðinni um næstu helgi til að útkljá þessa baráttu.
Víkingur og Breiðablik eru jöfn með 56 stig í tveimur efstu sætunum. Víkingar eru hins vegar með mikið betri markatölu, sem munar níu mörkum, og það gæti ráðið úrslitum.
Ef Víkingar vinna ÍA á Akranesi, í leik sem hefst klukkan 14, og Breiðablik tapar fyrir Stjörnunni, í leik sem hefst klukkan 17 í Kópavogi, eru úrslitin sama og ráðin. Þá væri Víkingur með 59 stig og Breiðablik 56, og munurinn á markatölu liðanna væri minnst ellefu mörk.
Reyndar væri ekki hægt að krýna Víkinga Íslandsmeistara en Blikar yrðu að vinna þá með minnst sex marka mun í lokaumferðinni annan sunnudag.
En öll önnur úrslit í leikjum toppliðanna munu sjá til þess að viðureign þeirra á Víkingsvellinum verði sá hreini úrslitaleikur sem flestir vonast eftir.
Greinina má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.