Arnar Gunnlaugsson missir af úrslitaleiknum

Arnar Gunnlaugsson.
Arnar Gunnlaugsson. mbl.is/Ólafur Árdal

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, verður fjarverandi í úrslitaleik liðsins um Íslandsmeistaratitilinn gegn Breiðablik í Víkinni næsta sunnudagskvöld. 

Arnar mun taka út leikbann þar sem hann hefur fengið fjögur gul spjöld á tímabilinu. 

Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ mun koma saman á morgun og þá verður Arnar að öllum líkindum úrskurðaður í leikbannið. 

Leikurinn verður sá fimmti þar sem Arnar tekur út leikbann en hann hefur tvívegis fengið rautt spjald. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert