KA greiðir ferðakostnað Stjörnunnar vegna mistaka í úrslitaleik

KA þarf að greiða ferðakostnað fyrir C-lið Stjörnunnar í 4. flokki drengja í knattspyrnu þar sem spila þarf framlengingu í úrslitaleik liðanna á Íslandsmóti aftur vegna mistaka við framkvæmd leiksins.

Í úrslitaleik liðanna á Akureyri þann 14. september lauk leiknum með jafntefli. Gripið var til framlengingar en aðeins leikið í 2x5 mínútur þegar leika átti 2x10 mínútur.

Enn var jafnt eftir framlenginguna og því gripið til vítaspyrnukeppni. Þar tók hvert lið aðeins þrjár vítaspyrnur en ekki fimm eins og átti að gera. KA vann vítaspyrnukeppnina og kærði Stjarnan úrslit leiksins.

Stjarnan krafðist þess að framlengingin yrði spiluð aftur á heimavelli félagsins í Garðabæ og krafðist þess til vara að framlengingin yrði spiluð aftur á Akureyri en að þá skyldi KA greiða ferðakostnað Stjörnunnar fram og til baka.

Spilað á morgun

Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, féllst á varakröfu Stjörnunnar og verður framlengingin því leikin aftur á Akureyri á morgun en að þessu sinni í 2x10 mínútur. Komi til vítaspyrnukeppni tekur hvort lið fimm spyrnur auk þess sem KA greiðir ferðakostnað Stjörnunnar.

Í athugasemdum sem KA kom á framfæri við aga- og úrskurðarnefndina var meðal annars bent á að dómari leiksins hafi upplýst þjálfarateymi beggja liða um lengd framlengingarinnar, sem hann hafi ákveðið sjálfur, án þess að borið hafi á nokkrum mótmælum og að mistök dómarans hafi bitnað á báðum liðum.

„Að mati aga- og úrskurðarnefndar eru ákvæði knattspyrnulaganna og reglugerðar ófrávíkjanleg og því ljóst að dómarinn gerði mistök varðandi leiktímann.

Engu breytir hvort mistök dómara hafi haft áhrif á báða aðila eða hafi verið framkvæmd með vitund beggja liða,“ sagði meðal annars í úrskurði nefndarinnar.

Gerum ekki greinarmun á getustigi

Stjarnan hefur sætt nokkurri gagnrýni fyrir að kæra úrslit leiksins og fann knattspyrnudeild félagsins sig því tilknúna að gefa út yfirlýsingu.

Hún er sem hér segir:

„Umtalsverð umfjöllun hefur átt sér stað í kjölfar þess að 4. flokkur karla spilaði úrslitaleik á móti KA þar sem framkvæmd leiksins fór úrskeiðis hjá KA. Það er gríðarlega mikilvægt að því sé haldið til haga að við sem félag gerum ekki greinarmun á getustigi þegar kemur að metnaði við að framkvæmd leikja sé í lagi og þá allra síst úrslitaleikur Íslandsmóts. Sú umræða sem hefur skapast á samfélagsmiðlum í kjölfarið er byggð á upphrópunum og eftir atvikum, röngum upplýsingum.

Ljóst er að bæði leiktími framlengingar var helmingi styttri en á að vera skv. reglum KSÍ og að fjöldi vítaspyrna var umtalsvert færri en reglur gera ráð fyrir. Það eru vonbrigði að forráðamenn KA hafi ekki sýnt þann drengskap að leggja inní umræðuna sem hefur skapast þá einföldu staðreynd að menn hafi gert mistök og leiðrétta þær rangfærslur sem koma þarna fram. Í þessu tilviki sem og öðrum þá er það stefna Stjörnunnar að öllum iðkendum sé sýnd sama virðing á hvaða getustigi sem er hvort heldur sem er í framkvæmd leikja eða í þeirri umræðu sem skapast hefur eftir á. Sannleikurinn er sá að þjálfarar liðsins og forráðamenn félagsins tóku þá ákvörðun að kæra úrslitin þannig að atvik sem þetta myndi ekki endurtaka sig.

Áfram fótboltinn og gerum öllum jafn hátt undir höfði og vöndum okkur í því mikilvæga starfi sem okkur er treyst fyrir.

Skíni Stjarnan!“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert