KR-ingar halda áfram að styrkja sig

Róbert Elís Hlynsson skrifaði undir þriggja ára samning í Vesturbænum.
Róbert Elís Hlynsson skrifaði undir þriggja ára samning í Vesturbænum. Ljósmynd/KR

Knattspyrnumaðurinn Róbert Elís Hlynsson er genginn til liðs við KR frá uppeldisfélagi sínu ÍR.

Þetta tilkynnti Vesturbæjarfélagið á samfélagsmiðlum sínum en Róbert Elís, sem er fæddur árið 2007, skrifaði undir þriggja ára samning í Vesturbænum.

Hann lék 22 leiki með ÍR í 1. deildinni á síðustu leiktíð þar sem liðið hafnaði í 5. sæti deildarinnar og tapaði fyrir Keflavík í undanúrslitum umspilsins.

Hann á að baki 13 leiki fyrir yngri landslið Íslands þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert