Varnarmaðurinn Halldór Smári Sigurðsson leikmaður Víkings varð fyrir axlarmeiðslum í sigrinum sögulega á Cercle Brugge í Sambandsdeildinni í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.
Þurfti hann að fara af velli um miðjan seinni hálfleik vegna meiðslanna og keyrður beint á spítala, en ljóst er að Halldór gæti verið frá í nokkurn tíma.
Hann var að spila sinn fyrsta leik í tæpa þrjá mánuði, en hann hefur mikið þurft að verma varamannabekk Víkinga á leiktíðinni.