Gæti ráðist á smáatriði á síðustu sekúndunum

Aron Elís Þrándarson og Kristinn Jónsson berjast um titilinn í …
Aron Elís Þrándarson og Kristinn Jónsson berjast um titilinn í lokaumferðinni. Eggert Jóhannesson

Það er úrslitaleikur fram undan í Bestu deild karla í fótbolta á sunnudag þegar tvö langbestu lið landsins leiða saman hesta sína og allt er undir. Íslandsmótið gæti ráðist á smáatriði á síðustu sekúndunum, svona viljum við hafa þetta.

Það er ekki annað hægt en að hrósa Víkingi úr Reykjavík og Breiðabliki og því sem þau hafa boðið okkur upp á undanfarin ár.

Breiðablik stakk af tímabilið 2022 og Víkingur í fyrra. Tímabil Breiðabliks var nær fullkomið fyrir tveimur árum og það sama má segja um tímabil Víkinga á síðasta ári. Víkingur dalaði árið 2022 og Breiðablik á síðasta ári.

Nú dalaði hvorugt liðið og úr verður einn mest spennandi leikur sem hefur verið spilaður á Íslandsmóti karla í áraraðir. Bæði lið hafa sýnt gríðarlegan stöðug­leika og gæði og fundið leið til að vinna leiki á ýmsa vegu.

Breiðablik hefur misst leikmenn á borð við Jason Daða Svanþórsson, Gísla Eyjólfsson, Anton Loga Lúðvíksson, Ágúst Eðvald Hlynsson og Klæmint Olsen frá því á síðustu leiktíð. Þá er Halldór Árnason á sínu fyrsta heila tímabili sem aðalþjálfari.

Bakvörðinn má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins sem kom út í morgun. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert