Víkingar verðlaunaðir af UEFA

Víkingar fagna sigrinum.
Víkingar fagna sigrinum. mbl.is/Eyþór

Víkingur úr Reykjavík vann frækinn sigur á Cercle Brugge frá Belgíu, 3:1, í 3. umferð Sambandsdeildarinnar í knattspyrnu karla í gær. 

Víkingur varð þar með fyrsta liðið til að vinna leik í lokakeppni í Evrópu. 

Frammistaða Víkinga gegn belgíska liðinu var valin frammistaða vikunnar af UEFA, sem birti svipmyndir úr leiknum á X-síðu Sambandsdeildarinnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert