Vilhjálmur Alvar Þórarinsson mun dæma úrslitaleik Íslandsmeistara Víkings og Breiðabliks í lokaumferð Bestu deildar karla í knattspyrnu.
Leikurinn fer fram annað kvöld. Víkingum nægir jafntefli til að verða Íslandsmeistari en með sigri verður Breiðablik Íslandsmeistari.
Vilhjálmi til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Birkir Sigurðarson. Ívar Orri Kristjánsson verður síðan fjórði dómari.