Víkingar eru á fullu að undirbúa síðasta leik liðsins á tímabilinu í Bestu deild karla í knattspyrnu sem er úrslitaleikur gegn Blikum á morgun.
Leikurinn er klukkan 18:30 á morgunn í Víkinni og er hreinn úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitilinn. Víkingar eru að huga að öryggi áhorfenda sem verða líklegast fjölmargir og hafa reist öryggisgirðingu.
Tilkynning Víkinga:
„Að gefnu tilefni vill Knattspyrnudeild Víkings koma því á framfæri að reistar hafa verið tveggja metra háar girðingar í kringum allt athafnasvæði félagsins í Víkinni og á úrslitaleik Bestu deildarinnar á morgun verður auk þess gríðarleg öryggisgæsla til að leikurinn geti farið sem best fram. Fólk sem ekki hefur miða á völlinn er beðið að halda sig heima og njóta leiksins í sjónvarpinu. Einnig bendum við fólki með miða á að sameinast í bíla, ganga eða nota almenningssamgöngur“.