Knattspyrnumaðurinn Viktor Jónsson hefur framlengt samning sinn við ÍA út tímabilið 2027. Hann hefur verið í herbúðum Skagamanna frá árinu 2019.
Viktor var næstmarkahæsti leikmaður Bestu deildarinnar á nýliðinni leiktíð með 18 mörk. Aðeins Benoný Breki Andrésson skoraði fleiri eða 21 mark. Þá var Viktor útnefndur besti leikmaður ársins á lokahófi ÍA um helgina.
Til þessa hefur Viktor búið á höfuðborgarsvæðinu en keyrt á æfingar og leiki. Hann hyggst hins vegar flytja með fjölskyldu sinni til Akraness á nýju ári.