Ólýsanlegt og sturlað

Arnór Gauti Jónsson með boltann í leiknum á sunnudagskvöld.
Arnór Gauti Jónsson með boltann í leiknum á sunnudagskvöld. mbl.is/Hákon

Arnór Gauti Jónsson varð á sunnudag Íslandsmeistari í fótbolta í fyrsta skipti er Breiðablik vann sannfærandi 3:0-útisigur á Víkingi í úrslitaleik í lokaumferð Bestu deildarinnar. Arnór kom til Breiðabliks frá Fylki fyrir tímabilið og var í stóru hlutverki síðari hluta þess.

„Tilfinningin var gjörsamlega ólýsanleg og sturluð. Maður vinnur alltaf að þessu, en ég var í Fylki þar sem ég fékk ekki smjörþef af titilbaráttu. Það er því sturluð tilfinning að enda þetta tímabil svona, með 3:0-sigri í Víkinni og þessari frammistöðu,“ sagði hann í samtali við Morgunblaðið.

„Það er gott að öll þessi vinna sem maður leggur á sig er að skila sér. Titillinn er að einhverju leyti mælikvarði á hvað þú leggur mikið á þig, þótt það skilgreini ekki alveg allt. Maður fagnar þessu með því að reyna að taka inn allt tilfinningaflóðið og njóta.

Það eru ekki allir það heppnir að vinna titla og standa uppi sem sigurvegarar. Maður nýtur þess eins og maður getur í kringum sitt fólk,“ sagði hann.

Það þurfti ekki mikið til að sannfæra Arnór, sem er uppalinn hjá Aftureldingu, um að skrefið í Kópavoginn væri það rétta.

„Breiðablik er þekkt fyrir að spila geggjaðan fótbolta sem bætir leikmenn. Þá er félagið líka þekkt fyrir að selja leikmenn til útlanda. Á sama tíma er liðið að berjast um titla, Evrópusæti og að ná langt í Evrópukeppnum. Það þurfti ekki mikið að sannfæra mig um að það væri rétt að skipta yfir.

Ef maður er ungur og spilar vel með Breiðabliki þá eru miklu meiri líkur en ekki á að þú komist á þann stað sem þig langar, sem er atvinnumennska. Það eru fjölmörg nýleg dæmi um það,“ sagði Arnór.

Elskar ríginn

Breiðablik og Víkingur eru búin að vera tvö langbestu lið landsins undanfarin ár og því við hæfi að þau hafi mæst í úrslitaleik, en ákveðinn rígur hefur myndast á milli félaganna.

„Mér finnst það drullugaman. Það er kominn mikill rígur okkar á milli sem hefur myndast því þetta eru tvö langbestu liðin undanfarin ár. Bæði lið spila rosalega góðan fótbolta og það er erfitt að vinna okkur. Ég elska þetta. Það er rígur á milli stuðningsmanna líka og það eru stuðningsmennirnir sem gera fótboltann að því sem hann er.“

Viðtalið við Arnór má lesa í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert