Knattspyrnumaðurinn Eiður Aron Sigurbjörnsson hefur rift samningi sínum við Vestra.
Það er fótbolti.net sem greinir frá þessu en Eiður Aron, sem er 34 ára gamall, gekk til liðs við félagið fyrir nýliðið keppnistímabil.
Eiður Aron skrifaði undir tveggja ára samning við Vestra, síðasta vor, en hann lék 20 leiki með liðinu í Bestu deildinni í sumar þar sem liðið hafnaði í 10. sætinu og hélt sæti sínu í deildinni.
Miðvörðurinn er uppalinn hjá ÍBV í Vestmannaeyjum en hefur einnig leikið með Örebro, Sandnes Ulf og Holstein Kiel á atvinnumannaferlinum. Alls á hann að baki 222 leiki í efstu deild og 14 mörk.