Matthías og Kristján taka við Val

Matthías og Kristján eru teknir við sem þjálfarar Vals.
Matthías og Kristján eru teknir við sem þjálfarar Vals. Ljósmynd/Valur

Matthías Guðmundsson og Kristján Guðmundsson hafa verið ráðnir þjálfarar Vals í knattspyrnu kvenna. Stjórn Knattspyrnudeildar Vals gerir þriggja ára samninga við þá en þeir verða báðir aðalþjálfarar liðsins.

Matthías lék með félaginu nánast allan sinn feril og hóf þjálfaraferilinn hjá félaginu. Hann náði góðum árangri með 2. flokk félagsins og varð síðar aðstoðarmaður Péturs Péturssonar áður en hann tók við kvennaliði Gróttu fyrir síðasta tímabil þar sem honum gekk vel.

Kristján Guðmundsson er einnig þekktur innan Vals því hann hefur bæði komið að þjálfun yngri flokka félagsins auk þess sem hann þjálfaði meistaraflokk karla hjá Val í tvö ár. Kristján hefur þjálfað hjá mörgum félögum á landinu, m.a. unnið bikarmeistaratitla með karlaliðum Keflavíkur og ÍBV. Nú síðast þjálfaði Kristján kvennalið Stjörnunnar í tæp sex ár.

Fáum inn mikla reynslu

„Við erum afskaplega ánægð með að hafa náð þessum tveimur snillingum til okkar og ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir muni mynda sterkt þjálfarateymi. Báðir eru þeir mjög færir þjálfarar og jákvæðir og skemmtilegir karakterar.

Þarna erum við að fá inn mikla reynslu sem skiptir gríðarlegu máli og ég held líka að þeir geti lært helling hvor af öðrum,“ segir Björn Steinar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, í tilkynningu.

Gott að vera kominn heim

Matthías Guðmundsson segist afskaplega ánægður með að vera kominn heim í Val.

„Það er gott að vera kominn heim og ég fann það þegar þau höfðu samband við mig að þetta er eitthvað sem ég er tilbúinn í. Ég hef átt frábæran tíma í Gróttu og það er erfitt að yfirgefa allt það frábæra fólk sem þar starfar en þetta er rétt skref fyrir mig.

Ég spilaði undir Kristjáni sem leikmaður í Val og ber mikla virðingu fyrir honum sem þjálfara. Við höfum rætt saman og horfum á hlutina mjög svipað. Ég hlakka til að koma inn af krafti og hjálpa til við að bæta kvennaliðið okkar enn frekar og gefa ungum og efnilegum Valsstelpum tækifæri,“ sagði Matthías.

Ekki mörg lið sem gátu sannfært mig

Kristján er á sama máli.

„Það eru ekki mörg lið á Íslandi sem gátu sannfært mig um að koma og þjálfa en ég veit að Valur er stórkostlegt félag og þarna virðist vera komið inn fólk sem hefur áhuga á því að byggja upp til framtíðar. Verkefnið er spennandi enda frábærir leikmenn í liðinu sem verður gaman að vinna með og búa til enn betra lið.

Matti hefur komið inn í þjálfun af krafti og hann er auðvitað bara einn mesti Valsari sem maður þekkir og frábær karakter. Það er heiður að fá að mynda teymi aðalþjálfara Vals með Matta og ég get ekki beðið eftir því að byrja að undirbúa liðið fyrir það verkefni að ná í titilinn aftur,“ sagði Kristján.

Hallgrímur Heimisson sem verið hefur aðstoðarþjálfari Péturs er einnig yfirþjálfari yngri flokka félagsins og mun einbeita sér að því ásamt öðrum verkefnum hjá Val.

Þá er samningur Ásgerðar Stefaníu Baldursdóttur sem var aðstoðarþjálfari Péturs Péturssonar, sem hætti störfum á dögunum, að renna út og verður ekki endurnýjaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka