U21-árs landsliðið til Spánar

Eggert Aron Guðmundsson er á meðal þeirra sem er enn …
Eggert Aron Guðmundsson er á meðal þeirra sem er enn þá gjaldgengur í U21-árs landsliðið. mbl.is/Karítas

Íslenska U21-árs landsliðið í knattspyrnu karla mun mæta liði Póllands í vináttulandsleik á Spáni þann 17. nóvember næstkomandi.

Leikurinn fer fram á Pinatar-svæðinu á Spáni og hefst leikurinn klukkan 16 að íslenskum tíma.

Íslenski hópurinn, sem verður skipaður leikmönnum fæddum árin 2004 og 2005, verður tilkynntur á föstudag.

Mun hópurinn halda til æfinga á Spáni mánudaginn 11. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert