Færeyski knattspyrnumaðurinn Patrik Johannesen er farinn frá Íslandsmeisturum Breiðabliks og til KÍ Klaksvíkur í heimalandinu.
Frá þessu greina Blikar á samfélagsmiðlum en hann gekk í raðir félagsins í nóvember 2022 eftir frábært tímabil með Keflavík.
Patrik lék 30 leiki með Breiðabliki og skoraði í þeim sjö mörk. Hann sleit krossband í fyrrasumar og var lengi að jafna sig á meiðslunum.