Þórhallur Siggeirsson, þjálfari U19-ára landsliðs karla í knattspyrnu, hefur valið leikmannahóp sinn fyrir þrjá leiki í fyrstu umferð undankeppni EM 2025 sem verða leiknir í Moldóvu í næsta mánuði.
Ísland er með Moldóvu, Írlandi og Aserbaídsjan í riðli. Leikirnir þrír verða leiknir frá 10. til 20. nóvember.
Alls eru sjö leikmenn af 19 á mála hjá erlendum liðum og þeirra á meðal er Viktor Nói Viðarsson, sonur Arnars Þórs Viðarssonar, fyrrverandi þjálfara A-landsliðs karla.
Er þetta í fyrsta sinn sem Viktor Nói, sem á belgíska móður, er valinn í yngri landslið Íslands en áður hafði hann leikið 21 leik fyrir yngri landslið Belgíu.
Vekur það nokkra athygli þar sem Arnar Þór sagði á fréttamannafundi þegar hann var landsliðsþjálfari haustið 2022 að Viktor Nói væri Belgi, ætti belgíska móður og byggi í Belgíu þó Arnar Þór hafi vissulega ekki útilokað neitt er hann var spurður hvort sonur sinn myndi spila fyrir Ísland.
Leikmannahópurinn:
Bjarki Hauksson - Stjarnan
Birnir Breki Burknason - HK
Breki Baldursson - Esbjerg fB
Daði Berg Jónsson - Víkingur R.
Daniel Ingi Jóhannesson - FC Nordsjælland
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF
Davíð Helgi Aronsson - Víkingur R.
Galdur Guðmundsson - FC Köbenhavn
Ívar Arnbro Þórhallsson - Höttur
Jón Arnar Sigurðsson - KR
Jón Sölvi Símonarson - Breiðablik
Kjartan Már Kjartansson - Stjarnan
Nóel Atli Arnórsson - AaB
Sesar Örn Harðarson - Selfoss
Sölvi Stefánsson - AGF
Stefán Gísli Stefánsson - Fylkir
Stígur Diljan Þórðarson - US Triestina
Viktor Nói Viðarsson - KAA Gent
Þorri Stefán Þorbjörnsson - Fram