Knattspyrnumaðurinn Kristinn Jónsson skrifaði í dag undir nýjan eins árs samning við Breiðablik.
Kristinn sneri aftur til Breiðabliks fyrir tímabilið frá KR og fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með liðinu á sunnudag, eftir sigur á Víkingi úr Reykjavík í hreinum úrslitaleik.
Bakvörðurinn fékk þungt höfuðhögg í fyrri hálfleik og varð að fara af velli og á spítala. Hann fékk loksins sigurmedalíuna á Kópavogsvelli í dag og nýjan samning í leiðinni.
Hann lék 23 leiki með Breiðabliki í deildinni á leiktíðinni og skoraði í þeim tvö mörk.