Fram fær öflugan liðsstyrk

Sigurjón Rúnarsson stangar boltann í sumar.
Sigurjón Rúnarsson stangar boltann í sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Knattspyrnumaðurinn Sigurjón Rúnarsson er genginn til liðs við Fram frá Grindavík. 

Frá þessu greindu Framarar í gærkvöldi en Sigurjón er 24 ára gamall miðvörður sem hefur allan sinn feril leikið með Grindavík. 

Hann á að baki 175 leiki fyrir Grindavík í meistaraflokki og þar af 28 í efstu deild. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert