Gervigras tekur við af grasi í Eyjum

Erlingur Guðbjörnsson formaður framkvæmdaráðs Vestmannaeyjabæjar, Ísey María Örvarsdóttir, Birgir Niels …
Erlingur Guðbjörnsson formaður framkvæmdaráðs Vestmannaeyjabæjar, Ísey María Örvarsdóttir, Birgir Niels Birgisson og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Í dag var tekin skóflustunga í tilefni þess að grasið verður fjarlægt og nýtt gervigras lagt á Hásteinsvöll í Vestmannaeyjum. Frá upphafi hefur verið leikið á grasi á vellinum og því um mikil tímamót að ræða.

Erlingur Guðbjörnsson, formaður framkvæmdaráðs Vestmannaeyjabæjar, Ísey María Örvarsdóttir, Birgir Niels Birgisson og Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri tóku skóflustungur í sameiningu.

Sigfús Gunnar Guðmundsson, ljósmyndari mbl.is í Vestmannaeyjum, smellti af myndum af þessu tilefni.

Í þann mund að taka skóflustungur.
Í þann mund að taka skóflustungur. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert