Sautján ára liðstyrkur í Kópavoginn

Helga Rut Einarsdóttir er komin til Breiðabliks.
Helga Rut Einarsdóttir er komin til Breiðabliks. Ljósmynd/Breiðablik

Knattspyrnukonan unga Helga Rut Einarsdóttir er gengin í raðir Breiðabliks frá Grindavík.

Þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára gömul hefur Helga leikið 44 leiki með Grindavík í 1. deild og skorað í þeim tvö mörk.

Hún gerði eitt mark í 17 leikjum með Grindavík á síðustu leiktíð. Helga hefur einnig leikið með yngri landsliðum Íslands, alls 16 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert