Knattspyrnumaðurinn Sveinn Margeir Hauksson hefur rift samningi sínum við KA.
Þetta staðfesti hann í samtali við fótbolta.net en Sveinn Margeir, sem er 23 ára gamall, skoraði fjögur mörk og lagði upp eitt mark í 15 leikjum með KA í Bestu deildinni í sumar.
Hann missti af seinni hluta tímabilsins með Akureyringum þar sem hann hélt út til Bandaríkjanna í meistaranám í fjármálaverkfræði við UCLA-háskólann.
„Ég er að halda öllu opnu, er bara að skoða hvernig lífið þróast þessa dagana,“ sagði Sveinn Margeir meðal annars í samtali við fótbolta.net.
Alls á hann að baki 93 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað 13 mörk en KA hafnaði í 7. sæti deildarinnar á nýliðnu keppnistímabili.