Sterkt jafntefli gegn Spánverjum

Viktor Bjarki Daðason skýtur að spænska markinu í kvöld.
Viktor Bjarki Daðason skýtur að spænska markinu í kvöld. mbl.is/Eyþór

Íslenska U17 ára landslið karla í fótbolta gerði í kvöld jafntefli, 2:2, gegn Spáni í undankeppni EM, en leikið var á heimavelli Þróttar í Laugardalnum.

Bæði lið enda því með sjö stig og eru komin áfram á næsta stig undankeppninnar. Spánn vann riðilinn með betri markatölu en Ísland.

Alexander Máni Guðjónsson kom Íslandi yfir á 32. mínútu en fimm mínútum síðar jafnaði Iago Barreiros og var staðan í hálfleik 1:1.

Pedro Rodríguez kom Spáni yfir á 63. mínútu. Ísland átti hins vegar lokaorðið því Gunnar Orri Olsen skoraði jöfnunarmark á 84. mínútu og þar við sat.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert