Tíu gætu leikið sinn fyrsta landsleik

Benóný Breki Andrésson er í landsliðshópnum.
Benóný Breki Andrésson er í landsliðshópnum. mbl.is/Óttar Geirsson

Tíu leikmenn gætu leikið sinn fyrsta U21-árs landsleik þegar Ísland mætir Póllandi í vináttulandsleik karla í knattspyrnu á Pinatar á Spáni þann 17. nóvember.

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari íslenska liðsins, valdi 20 leikmenn fyrir verkefnið og gæti því helmingur leikmannahópsins leikið sinn fyrsta landsleik fyrir U21-árs liðið.

KR á flesta fulltrúa í liðinu eða fjóra. Benóný Breki Andrésson, Halldór Snær Georgsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason og Júlíus Mar Júlíusson eru allir í hópnum en þeir Halldór Snær og Júlíus Mar gengu báðir til liðs við KR á dögunum.

Leikmannahópur Íslands:

Markverðir:
Lúkas J. Blöndal Petersson - Hoffenheim - 6 leikir
Halldór Snær Georgsson - Fjölnir

Aðrir leikmenn:
Logi Hrafn Róbertsson - FH - 12 leikir
Hlynur Freyr Karlsson - Brommapojkarna - 9 leikir
Eggert Aron Guðmundsson - Elfsborg - 7 leikir
Hilmir Rafn Mikaelsson - Kristiansund - 7 leikir
Daníel Freyr Kristjánsson - FC Frederica - 5 leikir
Benoný Breki Andrésson - KR - 4 leikir
Gísli Gottskálk Þórðarson - Víkingur R. - 3 leikir
Bjarni Guðjón Brynjólfsson - FH - 1 leikur
Guðmundur Baldvin Nökkvason - Stjarnan - 1 leikur
Ágúst Orri Þorsteinsson - Genoa
Dagur Örn Fjeldsted - HK
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport
Hinrik Harðarson - ÍA
Ingimar Torbjörnsson Stöle - FH
Jóhannes Kristinn Bjarnason - KR
Júlíus Mar Júlíusson - Fjölnir
Róbert Frosti Þorkelsson - Stjarnan

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert