Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari íslenska U21-árs landsliðsins í knattspyrnu, hefur neyðst til þess að gera eina breytingu á leikmannahópi sínum fyrir vináttuleik gegn Póllandi á Spáni um miðjan mánuðinn.
Þar sem Lúkas Blöndal Petersson var valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn í dag tekur hann ekki þátt í verkefninu með U21-árs liðinu.
Í hans stað hefur Ólafur Ingi valið Ásgeir Orra Magnússon, markvörð Keflavíkur, í leikmannahópinn.
Ásgeir Orri er tvítugur nýliði í U21-árs landsliðinu en hann á að baki einn leik fyrir U19-ára landsliðið.