Björn Sigurbjörnsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Víkings úr Reykjavík í knattspyrnu.
Björn var síðast þjálfari kvennaliðs Selfoss en lét af störfum í september eftir að hafa fallið niður um tvær deildir með liðinu á tveimur árum.
Þar á undan var hann aðstoðarþjálfari kvennaliðs Kristianstad frá 2011 til 2021.
Björn ólst upp hjá Víkingi og á alls átta leiki að baki með meistaraflokki liðsins.