Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni

Svava Rós Guðmunsdóttir.
Svava Rós Guðmunsdóttir. mbl.is/Hákon Pálsson

Knattspyrnukonan Svava Rós Guðmundsdóttir á von á sínu fyrsta barni ásamt unnusta sínum Hinriki Hákonarsyni.

Frá þessu greindi hún á samfélagsmiðlinum Instagram en Svava Rós, sem er 29 ára gömul, er samningsbundin Gotham í bandarísku NWSL-deildinni.

Hún hefur verið lengi frá keppni vegna meiðsla en hún hefur einnig leikið með Röa, Kristianstad, Bordeaux, Brann og Benfica á atvinnumannaferlinum. 

Hún er uppalin hjá Val og á að baki 103 leiki í efstu deild með Val og Breiðabliki. Þá á hún að baki 47 A-landsleiki og tvö mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert