Þrjár breytingar á íslenska liðinu

Andri Lucas Guðjohnsen og Logi Tómasson eru í byrjunarliðinu.
Andri Lucas Guðjohnsen og Logi Tómasson eru í byrjunarliðinu. Árni Sæberg

Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta, hefur opinberað byrjunarliðið fyrir leik Íslands og Svartfjallalands í Þjóðadeild karla í fótbolta sem fram fer í Svartfjallalandi í kvöld.

Alls eru þrjár breytingar á liði Íslands frá tapinu fyrir Tyrklandi á heimavelli. Aron Einar Gunnarsson, Stefán Teitur Þórðarson og Jón Dagur Þorsteinsson koma inn.

Daníel Leó Grétarsson, Mikael Anderson og Mikael Egill Ellertsson detta úr byrjunarliðinu en þeir Daníel og Mikael Anderson eru ekki með í þessum landsleikjum vegna meiðsla.

Mark: Hákon Rafn Valdimarsson.
Vörn: Valgeir Lunddal Friðriksson, Aron Einar Gunnarsson, Sverrir Ingi Ingason, Logi Tómasson.
Miðja: Jóhann Berg Guðmundsson, Arnór Ingvi Traustason, Stefán Teitur Þórðarson, Jón Dagur Þorsteinsson.
Sókn: Orri Steinn Óskarsson, Andri Lucas Guðjohnsen.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert