Stíga á mann þegar dómarinn horfir annað

Willum Þór Willumsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Tyrklandi.
Willum Þór Willumsson í leik með íslenska landsliðinu gegn Tyrklandi. Eyþór

Landsliðsmaðurinn Willum Þór Willumsson þarf að kljást við marga jaxla í C-deild Englands í fótbolta þar sem hann leikur með Birmingham.

„Við erum ekki með VAR í deildinni og þá komast menn upp með aðeins meira,“ sagði Willum í samtali við mbl.is.

„Það er varla hægt að skora úr horni, þar sem maður er tekinn niður og haldið í mann. Þeir eru helvíti grófir og stíga á mann inn á milli þegar dómarinn horfir annað. Þetta er samt skemmtileg upplifun,“ bætti hann við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert