Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í fótbolta, og eiginkona hans Hólmfríður Björnsdóttir eiga von á sínu þriðja barni. Jóhann er leikmaður Al-Orobah í Sádi-Arabíu en Hólmfríður býr enn á Englandi þar sem Jóhann var lengi leikmaður Burnley.
„Fjölskyldan mín býr enn þá á Englandi. Konan mín er ólétt og við tókum ákvörðun um að hún myndi eiga barnið þar,“ sagði hann.
Jóhann er ánægður með móttökurnar sem fjölskyldan hefur fengið í arabaríkinu.
„Þau hafa komið í heimsókn og það var vel tekið á móti þeim. Það er ekkert vesen að vera kona í Sádi-Arabíu. Þetta er gott og yndislegt fólk,“ sagði Jóhann.