Åge Hareide, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, mun ekki kalla neinn inn í hópinn þrátt fyrir að tveir hafi dottið út.
Aron Einar Gunnarsson meiddist í sigri Íslands á Svartfjallalandi síðastliðinn laugardag en Logi Tómasson er kominn í leikbann vegna tveggja gulra spjalda.
Munu þeir tveir ekki vera með íslenska liðinu gegn Wales annað kvöld, en þrátt fyrir það kemur enginn nýr leikmaður inn í liðið.
Rúnar Þór Sigurgeirsson verður þó með liðinu annað kvöld en hann var utan hóps á móti Svartfjallalandi.