Knattspyrnukonan Hrafnhildur Salka Pálmadóttir er að ganga til liðs við Val frá Stjörnunni.
Þetta tilkynnti Stjarnan á samfélagsmiðlum sínum en Hrafnhildur Salka, sem er fædd árið 2008, lék níu leiki með Stjörnunni í Bestu deildinni í sumar.
Þá lék hún sjö leiki með HK í 1. deildinni, þar sem hún var á láni fyrri hluta tímabilsins, og skoraði í þeim þrjú mörk.
Hrafnhildur Salka hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og á að baki 17 landsleiki með yngri landsliðunum þar sem hún hefur skorað eitt mark.